Goðamót Léttis
Goðamót Léttis verður haldið næsta föstudag og laugardag 6-7 júní á Hlíðarholtsvelli Akureyri. Mótið byrjar kl. 17:30 á föstudegi. Nánari dagskrá auglýst þegar skráningu líkur.
Fyrirhugaðir keppnisflokkar:
• Börn -unglingar – ungmenni -Tölt T3 og fjórgangur V1
• Fimmgangur opinn flokkur F1
• Gæðingaskeið opinn flokkur
• Pollaflokkur þar sem teyma má undir (skráning á [email protected] kostar ekki neitt)
Munið að velja uppá hvora hönd þið viljið sýna ykkar sýningu í töltinu.
Skráning er á http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add (ath að kerfið sendir ykkur tölvupóst og ef það kemur ekki tölvupóstur hefur skráningin mistekist)
Skráningargjöld 1000 kr. fyrir hverja grein. Skráningu lýkur á miðnætti miðvikudaginn 4. júní.
Við áskyljum okkur rétt á að fella niður greinar sem ekki næst næg þátttaka í.
Æskulýðsnefnd Léttis
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson