Þórarinn sigurvegari KS-deildarinnar
Þórarinn Eymundsson, í liði Hrímnis, stóð uppi sem sigurvegari KS-deildarinnar eftir lokakeppni mótaraðarinnar sem fram fór í gær. Þetta er annað árið í röð sem Þórarinn vinnur deildina.
Keppt var í slaktaumatölti og skeiði á lokamótinu.
Fanney Dögg Indriðadóttir og hryssan hennar Brúney frá Grafarkoti, komu sáu og sigruðu keppni í slaktaumatölti, með lokaeinkunnina 7,83. Þórarinn Eymundsson og Taktur frá Varmalæk og Teitur Árnason og Hreimur frá Kvistum voru jafnir í 2.-3. sæti.
A-Úrslit
1.Fanney Dögg & Brúney frá Grafarkoti – 7,83
2-3.Þórarinn Eymundsson & Taktur frá Varmalæk – 7,46
2-3.Teitur Árnason & Hreimur frá Kvistum – 7,46
4 Bjarni Jónasson & Roði frá Garði – 7,0
5.Líney María & Völsungur frá Húsavík – 6,67
Í keppni í skeiði í gegnum Svaðastaðahöll reyndist Elvar Einarsson á Segli frá Halldórsstöðum fljótastur.
Lið Hrímnis var stigahæsta lið mótsins, annað árið í röð, en liðið skipaði í ár, auk sigurvegarans Þórarins; Valdimar Bergstað, Líney María Hjálmarsdóttir og Hörður Óli Sæmundarson.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH