Landsmót hestamanna í brennidepli

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
LH boðar til fundar á miðvikudag

Fundur um stefnumótun Landsmóts hestamanna verður haldinn í húsi ÍSÍ í Laugardal miðvikudaginn 20. október klukkan 18.00 og er öllum opinn. Fundur um sama efni sem halda átti á Norðurlandi nú í vikunni hefur hins vegar verið felldur inn í dagskrá landsþings hestamanna og verður fyrsta mál á dagskrá eftir skýrslu stjórnar.

Eftir umræður um Landsmót hestamanna á landsþingi 2008 skipaði stjórn LH milliþinga nefnd til að fjalla ítarlega um málið og leggja fram tillögur að stefnumótun. Formaður nefndarinnar er Sveinbjörn Sveinbjörnsson, lögfræðingur. Hjörný Snorradóttir, sem unnið undanfarin ár að ítarlegri skýrslu um Landsmót hestamanna í námi sínu í Háskóla Íslands, hefur lagt nefndinni lið og hefur nefndin fengið fullan aðgang að upplýsingum hennar.

Á landsþingi hestamanna á Akureyri mun nefnin leggja fram áfangaskýrslu um málið og kalla eftir frekari umræðum og tillögum. Hún mun síðan skila lokaskýrslu 1. mars á næsta ári.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link