Fláki á toppinn

  • 28. júní 2012
  • Fréttir
Fláki á toppinn

Fláki frá Blesastöðum 1A tók toppsætið af Didda, þeir hlutu 8,81 í einkunn fyrir stókostlega sýningu sem uppskar mikinn fögnuð sólbakaðra áhorfenda í Hvammsbrekkunni.

Fas Fláka minnir áneitanlega á glæsihestinn Glampa frá Vatnsleysu og verður ekki hjá því komist að sjá líkindi þeirra á þessum myndum. 
 
Glampi vakti athygli fyrir mikinn fótaburð og hefur þessi brokkmynd verið einkennismynd stóðhestsins glæsilega. Þeir kepptu einmitt á landsmóti hér í Reykjavík árið 2000. Urðu þeir Björn Friðrik Jónsson, knapi hans og eigandi, í 3. sæti í B-flokki gæðinga og var í uppáhaldi meðal áhorfenda, enda mikið augnayndi.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link