Alltaf hægt að gera betur

  • 11. ágúst 2013
  • Fréttir
-sem er gott fyrir þá sem halda næstu mót.

Sandra og Roger Scherrer héldu HM2009 í Brunnadern í Sviss á búgarði sínum Neckertal. Þau segjast ánægð með mótið í ár, margt sé virkilega frábært. Hins vegar sé það auðvitað ýmislegt sem mætti betur fara „en það er bara gott fyrir þá sem á eftir koma“, segja þau brosandi.

Mikil vinna og undirbúningur liggur að baki stórmóts sem þessa, það vita þau vel sjálf. Oft er þessi vinna lítt sýnileg gestum mótsins. Keppnin rúllaði að mestu smurt áfram og það skiptir jú mestu.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link