Naflaskoðun nauðsynleg

  • 19. október 2012
  • Fréttir
Naflaskoðun nauðsynleg

Gunnar Steinn Pálsson almannatengill hélt afar eftirtektarvert erindi á Landsþingi LH í dag þar hvatti hann til endurskoðunar á stefnunni. Þeir sem halda um valdataumana og eiga að vera ábyrgir fyrir samstöðu meðal hestamanna þurfi að finna leiðir til lausnar.

Í máli sínu benti Gunnar Steinn á þá stöðnun sem hafi orðið í hestamennskunni í kjölfar góðærisins. Talaði hann um timburmenn eftir góðærið og að geirinn væri í raun staddur í óeðlilegu umhverfi – verðsprengja í faginu hefði orðið til þess að verð á hesthúsum, folatollum og reiðhestum sé orðið of hátt. Þetta ástand leiði til stöðnunar. Lítil sem engin nýliðun sé í hestamennskunni og hinn almenni hestamaður sé á undanhaldi. Annað sem þessu veldur er að á einfaldan hátt er varla hægt að koma inn í sportið, það vantar félag, stað eða stofnun sem hjálpar fólki um grunnupplýsingar sem til þarf til að byrja í hestamennsku.

Hann sagði að geirinn þyrfti nú að horfast í augu við ýmis vandamál sem hann standi frammi fyrir,  s.s. að ræktunamarkmiðið sé fyrir fáa útvalda og að það skorti markmið sem örvi nýliðun og grasrótina.

Hann sagði ástæðu þess að svo væri komið vera skort á samstöðu og rangt hugarfar gagnvart hinni almennu hestamennsku. Lausnin fælist í því að styrkja samstöðuna, leggja frá sér valdasprotana, fara í naflaskoðun og búa til eitt kerfi utan um hestamennskuna.

Erindi Gunnars Steins fékk auðheyranlega meðbyr fundarmanna því hann uppskar mikið klapp.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link