Vinna KS tölt í fjórða sinni
Rósberg Óttarsson:
Ólafur Magnússon og Gáski frá Sveinsstöðum sigruðu töltið í KS-deildinni, Meistardeild Norðurlands, sem fram fór í kvöld í Svaðastaðahöllinni. Sigur þeirra var öruggur og sá fjórði í töltkeppni Meistaradeildarinnar frá upphafi. Það var strax ljóst í forkeppninni að þeir félagar væru í fantaformi en eftir hana voru þeir efstir með 7,57 í einkunn.
Næstir komu Bjarni Jónasson á Roða frá Garði með 7,17 og þá Sölvi Sigurðarson á Glað frá Grund með 7,07. Aðrir í A úrslitum voru Tryggvi Björnsson á Stórval frá Lundi með 7,0 og Baldvin Ari sem sigraði B úrslitin á Senjor frá Syðri – Ey með 7,22 í einkunn. Röð þriggja efstu manna breyttist ekki í A úrslitum en Tryggvi og Baldvin Ari höfðu sætaskipti. Ólafur og Gáski sýndu snilldar tilþrif og yfirferðin á tölti engu lík hjá þeim félögum.
A úrslit
Ólafur Magnússon Gáski frá Sveinsstöðum 7,89
Bjarni Jónasson Roði frá Garði 7,67
Sölvi Sigurðarson Glaður frá Grund 7,61
Baldvin Ari Guðlaugsson Senjor frá Syðri – Ey 7,33
Tryggvi Björnsson Stórval frá Lundi 7,0
Stigakeppni knapa
Bjarni Jónasson 22 stig
Sölvi Sigurðarson 21 stig
Ólafur Magnússon 18 stig
Ísólfur Líndal Þórisson 17 stig
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH