„Stóð upp úr hjólastjólnum“
Anna Rebecca heldur fyrirlestur um framkomu við fatlaða einstaklinga í Harðarbóli í Mosfellsbæ fimmtudaginn 13.mars kl. 19.30
Okkar frábæri félagi Anna Rebecca sem lenti í hestaslysi fyrir einu og hálfu ári síðan ætlar að halda fyrirlestur um mismunandi framkomu fólks við fatlaða og ófatlaða. Hún hefur upplifað mjög margt á sínum bataferli og ætlar að fræða okkur um það hvernig hún upplifði það, hvernig framkoma fólks breyttist við það að hún var allt í einu komin í hjólastól.
Boðið verður upp á salat og brauð sem hægt verður að kaupa á 500 kr.
Styttu haustið með EiðfaxaTV