Vallarmótið

  • 19. ágúst 2014
  • Fréttir
Enginn skráningargjöld.

Hið árlega og vinsæla Vallarmót verður haldið laugardaginn 30. ágúst kl. 13:00. Keppnin mun fara fram á beinni braut en pollar og börn á hringvelli eða inn í reiðhöll (fer eftir veðri). Í pollaflokki er leyfilegt að teyma undir. Í unglinga, ungmenna og opnum flokki er riðið hægt tölt og frjáls ferð á beinni braut. Meðan á mótinu stendur verður boðið uppá grillaðar pylsur og gos eða ávaxtasafa.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Pollaflokk
Barnaflokk
Unglingaflokk
Ungmennaflokk
Áhugamannaflokk
Opnum flokki
100 m skeiði
Bjórreið

ATH. EKKERT SKRÁNINGARGJALD. Skráning fer fram á staðnum frá kl 12. Völlur er í Rangárþingi Eystra, 5 km norðan við Hvolsvöll. Frá Hvolsvelli er ekinn Fljótshlíðarvegur rétt út fyrir þorpið, en þar liggur vegur merktur 262 Völlur. Eftir 5km er afleggjari til vinstri, merktur Völlur hrossarækt.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link