Viðar sigursælastur
Keppt verður í tölti í Meistardeildinni á morgun og er hún vinsælasta greinin. Ráslistarnir eru klárir og munu sigurvegararnir frá því í fyrra Viðar Ingólfsson og Vornótt frá Hólabrekku mæta í braut. Viðar Ingólfsson hefur unnið töltið langoftast af öllum eða alls þrisvar sinnum og gaman verður að sjá hvort hann bæti við þeim fjórða.
Viðar og Tumi frá Stóra-Hofi eru eitt farsælasta parið í Meistaradeildinni en þeir hafa sigrað sjö greinar. Töltið 2007 og 2011, slaktaumatölt 2007, 2008 og 2010.
Sigruvegarar töltsins síðustu ára:
- 2001 Adolf Snæbjörnsson Elding frá Hóli
- 2002 Sigurður Sigurðarson Fífa frá Brún
- 2006 Hulda Gústafsdóttir List frá Vakursstöðum
- 2007 Viðar Ingólfsson Tumi frá Stóra-Hofi
- 2008 Þorvaldur Árni Þorvaldsson Rökkvi frá Hárlaugsstöðum
- 2009 Sigurbjörn Bárðarson Grunur frá Oddhóli
- 2010 – Féll niður vegna hestapestar
- 2011 Viðar Ingólfsson Tumi frá Stóra-Hofi
- 2012 Sara Ástþórsdóttir Díva frá Álfhólum
- 2013 Viðar Ingólfsson Vornótt frá Hólabrekku
Styttu haustið með EiðfaxaTV