Úrtaka á Allra sterkustu
Þórarinn Ragnarsson og Þytur frá Efsta-Dal II sigruðu Þá allra sterkustu í fyrra.
Ákveðið hefur verið að halda úrtöku vegna töltkeppni „Þeirra allra sterkustu“ um nokkur laus pláss.
Úrtakan verður sunnudaginn 22.mars kl. 16.00 í Sprettshöllinni. Skráningargjald er kr. 5.000 Knapar með hesta sem telja sig eiga erindi á „Allra sterkustu“ sem fer fram 4. apríl í Sprettshöllinni eru hvattir til að skrá sig í úrtökuna. Skráning sendist [email protected] ásamt greiðslukvittun fyrir skráningu.
Greiðist inn á:
Landssamband hestamannafélaga kt. 7101693579, bnr. 513-26-1448.
Þetta segir tilkynning frá Landsliðsnefnd LH.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH