Stóðhestasýningin í Gunnarsholti 1989
Það ríkti hátíðarstemning á stóðhestasýningum í Gunnarsholti sem fram fóru hvert vor. Svo var að merkja að hestaáhugafólk hafði gríðarlegan áhuga á sýningunni sem haldin var á því herrans ári 1989. Á milli 2500-3000 manns gerðu sér þá leið á Rangárvelli til að skoða unga og efnilega fola.
Meðal þeirra hesta sem kynntir voru á þessari sýningu voru Pá frá Laugarvatni, Kolfinnur frá Kjarnholtum, Geisli frá Meðalfelli, Þokki frá Garði og Otur frá Sauðárkróki. Að auki fóru 14 ungir hestar í dóm og stóð Toppur frá Eyjólfsstöðum efstur þeirra fjögurra vetra en Stígandi frá Sauðárkróki var efstur fimm vetra folanna.
Grein um sýninguna og myndir má nú nálgast hér og hægra megin á forsíðunni en í tengslum við útgáfu stóðhestablaðs Eiðfaxa mun Eiðfaxi ásamt hestamannafélaginu Sleipni endurvekja þessa hátíðarstemningu með stóðhestadegi sem haldinn verður að Brávöllum á Selfossi laugaradaginn 28. apríl nk.
Allir þeir hestar sem eru með í stóðhestablaði Eiðfaxa eiga rétt á þátttöku á hátíðinni en þar mun fara fram kynning á ungum sem eldri stóðhestum á beinni braut, í anda sýninga stóðhestastöðvarinnar Gunnarsholts forðum. Einnig verður boðið upp á afkvæmahópa og ræktunarbússsýningar.
Aðgangur verður ókeypis.
Enn er hægt að skrá hross í stóðhestablað Eiðfaxa en skráning fer fram hér og í gegnum netfangið [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH