Sýnikennsla og skemmtun í mosó

  • 20. maí 2013
  • Fréttir
Sýnikennsla og skemmtun í mosó

Miðvikudaginn 22. maí kl. 20.00,

býður Hestamannafélagið Hörður ásamt Súsönnu Ólafsdóttur, Söru Sigurbjörnsdóttur, Trausta Þór, Ragnheiði  Þorvaldsdóttur o. fl. upp á stórskemmtilega hestasýningu fyrir alla sem áhuga hafa á íslenska hestinum.  
Hestar og knapar sýna listir sínar í leik og gleði þar sem vinátta og virðing er í hávegum höfð. 
 
 
Þessi sýning er tileinkuð Einari Öder, Svönu og fjölskyldu og við hvetjum alla hestamenn að standa saman, senda þeim hlýja strauma og jákvæða orku í batabaráttunni. 
 
 
Hestaáhugafólk látið þessa sýningu ekki framhjá ykkur fara,“ segir í tilkynningu frá Súsönnu Ólafsdóttur og Fræðslunefnd Harðar

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link