Kynbótasýning á Selfossi flutt í Hafnarfjörð
Af illviðráðanlegum orsökum hefur verið ákveðið að flytja kynbótasýninguna á Brávöllum/Selfossi (26.-28. maí) yfir á Sörlastaði í Hafnarfirði.
Hollaraðir, tímasetningar og skipulag allt stendur sem fyrr – utan breytt staðsetning sýningarinnar.
Beðist er velvirðingar á því óhagræði sem þessu kann að fylgja fyrir knapa og umráðamenn gripa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH