Siggi Sig í reiðtíma á Spáni – myndir og myndrot.
Á ferð okkar um Andalúsíuhéraðið á Spáni heimsóttum við Íslandsvininn og þjálfarann José Luis Munoz en hann býr fyrir utan borgina Sevilla…
Hann tók vel á móti íslensku hestafólki enda kunnugur því eftir að hafa haldið námskeið einu sinni í hestamiðstöðinni Dal í Mosfellssveit.
José lét vel af dvöl sinni í Dal og sagði hann að margt væri líkt með Andalúsíu hestinum og þeim íslenska.
Hann setti upp fyrir okkur sýnikennslu í þjálfun fyrir fimiæfinga keppni og var það fróðlrgt að sjá. Að lokinni sýningunni bauð hann Sigurði Sigurðarsyni á bak og sagði hann til er Siggi reið hinar ólíku æfingar. Viðtal við José verður birt í tímaritinu Eiðfaxa á næstunni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH