Stórmót Geysis

  • 13. júlí 2011
  • Fréttir
Stórmót Geysis

Stórmót Geysis verður haldið um Verslunarmannahelgina, daganna 28-31 júlí, að er fram kemur í tilkynningu frá stjórn hestamannafélagsins.

“Mótið er opin gæðingakeppni  og einnig félagsmót Geysis þar sem hver og einn keppandi sýnir sitt prógram.  Keppt verður í barnaflokki, unglingaflokki, ungmenniflokki, B-flokki og A-flokki gæðinga. Einnig verður opin töltkeppni.

Skráning fer fram mánudagskvöldið 25.júlí kl 19:00-22:00 í símum 8642118 Hallgrímur, 8978551 Elli, 8939966 Steinn, 8943106 Vignir.

Upplýsingar sem þarf við skráningu er IS-númer og nafn hests, kt og nafn eiganda, kt og nafn knapa.

Skráningargjald er 3000 kr og greiðist með korti gegnum síma á sama tíma og skráning ferfram.

Þeir sem hafa áhuga á því að koma með ræktunarbú á kvöldvökuna skulu hafa samband og skrá á sama tíma og skráning fer fram.

Sameiginlegt grill verður á sunnudagskvöldið 31.júlí, þar sem allir geta komið með á grillið og átt saman góða kvöldstund með góðri tónlist eins og í fyrra.

Miðaverð verður 1500 kr dagurinn eða 3000 kr allt mótið. Allt innifalið,” segir í tilkynningunni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link