Landsmót 2024 Konráð og Kjarkur efstir á stöðulista í 150 metra skeiði

  • 27. júní 2024
  • Fréttir
14 pör hafa þátttökurétt í kappreiðaskeiði

Þátttökurétt í tölti og kappreiðum á Landsmóti ráðast af stöðulistum löglegra móta sem lokið var fyrir 17. júní 2024.

Keppni í 150 metra skeiði er ætið skemmtileg og öll þau pör sem eiga þátttökurétt í þeirri grein fóru vegalengdina á vel undir 15 sekúndum. Það ber vitni þess að mikil gróska er í skeiðgreinum. Fyrir helgi voru stöðulistar birtir og þau pör tilgreind sem náð hafa inn í þær fjölmörgu greinar sem keppt er í á landsmóti í skeið- og íþróttagreinum.

Fljótastir í vor voru þeir félagar Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu er þeir fóru á 13,62 sekúndum sem er Íslandsmet í þeirri grein en ekki hafa borist staðfestingar á því meti. Með annan besta tíma fyrir Landsmót er Árni Björn Pálsson og Þokki frá Varmalandi á tímanum 14,13 sekúndum í því þriðja er Gústaf Ásgeir Hinriksson á Sjóði frá Þóreyjarnúpi á 14,18 sekúndum.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link