Hverjir verða tilnefndir sem gæðingaknapi ársins ?

  • 14. október 2012
  • Fréttir
Hverjir verða tilnefndir sem gæðingaknapi ársins ?

Í gær birtum við frétt um hverjir okkur þóttu líklegir til að verða tilnefndir sem Íþróttaknapi ársins og nú birtum við listann yfir þá sem við teljum vera líklega sem Gæðingaknapi ársins. Knapar birtast í stafrófsröð og tekið er fram að þetta er ekki endanlegur listi heldur einungis vangaveltur blaðamanns.

Gæðingaknapi ársins 2012
  • Einar Öder Magnússon sigraði B-flokkinn á Landsmótinu nú í sumar á Glóðafeyki frá Halakoti. 
  • Guðmundur Björgvinsson varð annar í B-flokknum á Landsmótinu í sumar á Hrímni frá Ósi. Einnig sigraði Guðmundur A-flokkinn á Stórmóti Geysis á Snævari-Þór frá Eystra-Fróðholti.
  • Sigurbjörn Bárðarson endaði þriðji í A-flokknum á Landsmótinu í Reykjavík á Stakk frá Halldórsstöðum og sigraði A-flokkinn á Meistaramóti Andvara á Stakki í áttunda skiptið í röð.
  • Sigurður Sigurðarson sigraði A-flokkinn á Landsmótinu í Reykjavík á Fróða frá Staðartungu. Hann var þriðji í B-flokknum á Landsmótinu á Loka frá Selfossi. Hann sigraði einnig B-flokkinn á Stórmóti Geysis á Blæju frá Lýtingsstöðum með einkunnina 9,26 sem er ein hæðsta einkunn sem gefin hefur verið í B-flokki gæðinga.
  • Þórður Þorgeirsson varð annar í A-flokki gæðinga á Landsmótinu, eftir að hafa leitt keppnina eftir bæði forkeppni og milliriðla. Þórður sigraði einnig A-flokkinn á gæðingamóti í Agiedenberg í Þýskalandi á Fláka frá Blesastöðum 1A. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link