Stjörnutölt á laugardag
Stefán Birgir og Aldís frá Krossum munu mæta á Stjörnutölt á laugardag.
Hið árlega Stjörnutölt Léttis verður haldið í Léttshöllinni á Akureyri 21. mars.
24 knapar hafa staðfest komu sína og eru þeir allir kynntir hér.
Ísólfur Líndal sigurvegari gæðingafimi Meistaradeildar mun vera með sýnikennslu í gæðingafimi kl. 20:00 og hefst keppnin að henni lokinni.
Það kostar 2000 kr. inn og frítt er fyrir 12 ára og yngri.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjörnutöltsnefnd Létti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH