Þýska landsliðið kynnt – video-
Í lok þýsks meistaramóts í Roderath í Þýskalandi kynnti landsliðsstjórinn Horst Klinghart fulltrúa Þýskalands á Heimsmeistaramótinu í Austurríki í byrjun næsta mánaðar.
Þýska liðið skipar eftirfarandi knapar og hross:
Henning Drath var staddur á mótinu í Roderath og tók eftirfarandi myndbönd. Þar má sjá Frauke Schenzel og Tígull vom Kronshof sem munu etja kappi við Huldu Gústafsdóttur og Kjuða frá Kirkjuferjuhjáleigu í fjórgangskeppninni, Steffi Kleis og Darri vom Lipperthof sem munu mæta Eyjólfi Þorsteinssyni og Ósk frá Þingnesi í keppni í slaktaumatölti. Þá má á þriðja myndbandinu sjá þrjá efstu knapa í fimmgangskeppni mótsins, Hauk Tryggvason og Baltasar vom Freyelhof, Dörte Mitgau og Ilmur von Ellenbach ásamt Vicky Eggertsson og Kvikur vom Barghof en þær tvær síðastnefndu munu vera fulltrúar Þýskalands í fimmgangskeppni Heimsmeistarmótsins sem fer fram í St. Radegund í Austurríki daganna 1.-7. ágúst nk.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH