Glæsileg endurkoma-
Fláki frá Blesastöðum 1A skaust rétt í þessu í efsta sæti A-flokks gæðinga þegar hann hlaut einkunnina 8,79.
Fláki er 7 vetra brúntvístjörnóttur stóðhestur úr ræktun Magnúsar Trausta og Hólmfríðar á Blesastöðum 1A. Hann er undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og Blúndu frá Kílhrauni. Hann var sýndur í kynbótadómi á landsmóti í fyrra og hlaut þá aðaleinkunnina 8,49, fyrir kosti 8,71 og var í 3. sæti í flokki 6 vetra stóðhesta.
Knapi Fláka er Þórður Þorgeirsson en hann hefur á undanförnum árum beitt sér meira á kynbótabrautinni en í keppni og var meðal annars valinn kynbótaknapi ársins á uppskeruhátíð hestamanna í fyrra. Glæsileg endurkoma hjá afreksknapanum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH