Allir íslensku knaparnir í úrslit
Hulda María Sveinbjörnsdóttir og Hetja frá Árbæ
Alls tóku 12 knapar þátt í fimmgangi F1 í ungmennaflokki þar af voru þrír knapar sem kepptu fyrir hönd Íslands.
Hulda María Sveinbjörnsdóttir var önnur í rásröð. Hún keppti á hryssunni Hetju frá Árbæ sem er undan Sjóði frá Kirkjubæ og Hrefnu frá Árbæ. Einkunn Huldu var 6,37.
Védís Huld Sigurðardóttir var fimmta í rásröðinni. Hún keppir á stóðhestinum Búa frá Húsavík sem er undan Hróðri frá Refsstöðum og Dúsu frá Húsavík. Einkunn þeirra var 5,87 en hún hlaut mjög misjafnar einkunnir frá dómurum og voru þeir ekki sammála um framkvæmd hennar á skeiðsýningu þar sem hún fékk frá 1,5 upp í 7,0.
Matthías Sigurðsson var sjötti í rásröðinni. Hann keppir á stóðhestinum Páfa frá Kjarri sem er undan Tinna frá Kjarri og Nunnu frá Bræðratungu. Einkunn þeirra var 6,37.
Allir knapar íslands unnu sér því þátttökurétt í úrslitum en Védís Huld mætir til B-úrslita annað kvöld en þau Hulda María og Matthías í A-úrslit á sunnudaginn.
Efst að lokinni forkeppni er Tekla Petersson á Vatnadís från Noastallet með einkunnina 6,97, hún keppir fyrir hönd Svíþjóðar.
| # | Knapi | Hestur | Einkunn |
| 1 | Tekla Petersson | Vatnadís från Noastallet | 6.97 |
| 2.1 | Hulda María Sveinbjörnsdóttir | Hetja frá Árbæ | 6.37 |
| 2.2 | Matthías Sigurdsson | Páfi frá Kjarri | 6.37 |
| 4 | Amelie Segerström | Kopar frá Sunnuhvoli | 6.27 |
| 5 | Rebecca Hesselbjerg Taulborg | Tindra fra Kirstineholm | 6.13 |
| 6 | Herman Gundersen | Vésteinn frá Bakkakoti | 6.07 |
| 7 | Olivia Kasperczyk | Tengill frá Hofi | 5.93 |
| 8 | Védís Huld Sigurðardóttir | Búi frá Húsavík | 5.87 |
| 9 | Julie Thorsbye Andersen | Garpur frá Kjarri | 5.47 |
| 10 | Mathilde Hudlebusch Vestergaard | Hroki frá Margrétarhofi | 5.10 |
| 11 | Ester Dahl á Heygum | Dalvar frá Dalbæ II | 4.00 |
| 12 | Emma Skårbø | Hlýri fra Elvahøj | 0,00 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH