Hilma og Laukur frá Varmalæk Norðurlandameistarar unglinga
Þrjú efstu á palli í unglingaflokki. Ljósmynd: Natalie Riedel
Í dag er síðasti keppnisdagur á Norðurlandamótinu í Herning. Fyrstu úrslit dagsins voru A-úrslit í unglingaflokki á gæðingavellinum.
Þar áttu íslendingar þrjá fulltrúa þau Elvu Rún Jónsdóttur, Dag Sigurðarson og Ragnar Snæ Viðarsson.
Dagur Sigurðarson á Rögni frá Minni-Völlum endaði í þriðja sæti með einkunnina 8,625. Elva Rún Jónsdóttir lenti í vandræðum á brokki á Bellu frá Blönduósi og uppskár 8.sætið og í því sjöunda varð Ragnar Snær Viðarsson á Skorra frá Blönduósi.
Norðurlandameistari er hin sænska Hekla Pettersson á Lauki frá Varmalæk en þau hún vann með þó nokkrum yfirburðum með einkunnina 8,76. Í öðru sæti varð sigurvegari B-úrslita frá því í gær, Andrea Isager Lindberg á Þrym frá Álfhólum með 8,66 í einkunn en þau keppa fyrir hönd Danmerkur.
A-úrslit í unglingaflokki
| # | Knapi | Hestur | Einkunn |
| 1 | Hilma Pettersson | Laukur frá Varmalæk | 8,760 |
| 2 | Andrea Isager Lindberg | Þrymur frá Álfhólum | 8,660 |
| 3 | Dagur Sigurðarson | Rögnir frá Minni-Völlum | 8,625 |
| 4 | Elisa Lund Iskov | Arður frá Miklholti | 8,540 |
| 5 | Alfons Bergqvist | Karmen från Gunvarbyn | 8,495 |
| 6 | Molly Erikssom | Erró frá Ármóti | 8,480 |
| 7 | Ragnar Snær Viðarsson | Skorri frá Þúfu í Landeyjum | 8,250 |
| 8 | Elva Rún Jónsdóttir | Bella frá Blönduósi | 8,240 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH