Norðurlandamót Emilie Saaugaard Norðurlandameistari í slaktaumatölti

  • 11. ágúst 2024
  • Fréttir

Efstu þrár í slaktaumatölti ungmenna. Ljósmynd: Anja Mogensen

Herdís Björg hlaut silfur

Áfram heldur úrslitadagurinn í Herning á Norðurlandamótinu. Nú er keppni í slaktaumatölti ungmenna lokið og ljóst að sigurinn féll í skaut Emilie Saaugaard-Haaning á Vöku fra Nr. Tolstrup með einkunnina 7,25. Emilie keppir fyrir Danmörku.

Herdís Björg Jóhannsdóttir keppti til úrslita á hryssunni Elskamin von Erkshausen og hlaut hún silfur og annað sætið með einkunnina 7,13. Í

þriðja sæti varð Saga Berggren á Kolfinni från Margaretehof með einkunnina 6,96 en hún keppir fyrir Svíþjóð.

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link