Sigurbjörn ríður á vaðið
Félag Tamningamanna fer nú af stað á nýjan leik með sýnikennslur fyrir félagsmenn sína og almenning…
Sigurbjörn Bárðarson, tamningameistari FT og knapi ársins 2010, mun ríða á vaðið og fjalla um notkun mismunandi beislabúnaðar við þjálfun almennt.
Sigurbjörn hefur gríðarlega víðtæka þekkingu á beislabúnaði og verður án efa mjög fróðlegt að fylgjast með meistaranum.
Sýnikennslan verður haldin í reiðhöll Gusts þann 30.desember kl.20:00. Frítt inn fyrir skuldlausa félagsmenn FT, 1000kr fyrir aðra.
Hlökkum til að sjá ykkur,
Stjórn FT.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári