Snúrumúlar á áramótabálið
Ýmislegt bendir til að næstu vikur og misseri verði hægt að fá hringgerði og svokallaða snúrumúla gefins, — eða allavega á slikk! Á heimasíðu Olil Ambe og Bergs Jónssonar, www.gangmyllan.is, er sagt frá því að hinn snjalli knapi og reiðkennari Julio Borba, hafi á námskeiði fyrir skömmu kynnt frumtamninga-aðferð sem gerir áðurnefnda hluti óþarfa og úrelta.
Julio Borba, sem er portúgalskur, hefur komið til landsins í allmörg skipti nokkur undanfarin ár og kennt völdum hópi reiðmanna reiðlistina með sínu nefi. Hefur sú kennsla einkum beinst að þjálfun taminna hrossa. Nú var hins vegar augum beint að frumtamningum. Ef lesa má rétt úr frétt á www.gangmyllan.is er margt af því sem áður var talið gott og gilt, í raun bæði villandi og með takmarkað notkunargildi. Skýrt er tekið fram að nefndir snúrumúlar fara á áramótabrennuna og hringgerðin í Hringrás, sem er endurvinnsla fyrir brotajárn. Sem sagt: Nú er enn einu sinnu búið að uppgötva „einu réttu“ aðferðina í tamningunum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári