Heimsmet Konráðs og Kjarks staðfest
Mynd úr tímatöku þegar metið var sett. Ljósmynd: Heimasíða FEIF
Á heimasíðu FEIF nú í morgun var það staðfest að Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II eru heimsmethafar í 150 metra skeið. Heimsmetið settu þeir á Íslandsmótinu í hestaíþróttum sem fram fór í lok júlí. Heimsmets tíminn er 13,46 sekúndur.
Þeir bæta þar með 13 ára gamalt heimsmet í greininni um eitt sekúndubrot. Fyrrum heimsmethafi er Catherine Gratzl á Blökk frá Kambi.
Þeir eru því aftur orðnir ríkjandi heimsmethafar en þeir áttu metið í 250 metra skeiði frá árinu 2018 til 2021 sett á Landsmóti í Víðidalnum árið 2018, þá fóru þeir þá vegalengd á 21,15 sekúndum. Það met bætti Daníel Ingi Smárason á Huldu från Margareterhof árið 2021 og ríkir það ennþá. 21,07 sekúndur.

Konráð og Kjarkur hafa átt magnaðan feril saman síðastliðin 10 ár. Ljósmynd: Facebook
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH