Stórmót Geysis: Ragnheiður og Bassi sigruðu A-flokk áhugamanna
Áhugamenn öttu kappi í úrslitum A-flokks á Stórmóti Geysis í kvöld og var það Ragnheiður Hallgrímsdóttir á Bassa frá Kastalabrekku sem fór með sigur af hólmi. Hlutu þau í lokaeinkunn 8,35. Sara Pesenacker og Hnokki frá Skíðbakka III urðu í öðru sæti með einkunnina 8,27 og Súsanna Katarína Guðmundsdóttir og Garpur frá Torfastöðum II hlutu þriðja sætið með einkunnina 8,07
Úrslit urðu eftirfarandi:
1 Bassi frá Kastalabrekku / Ragnheiður Hallgrímsdóttir 8,35
2 Hnokki frá Skíðbakka III / Sara Pesenacker 8,27
3 Garpur frá Torfastöðum II / Súsanna Katarína Guðmundsdóttir 8,07
4 Mammon frá Stóradal / Harpa Sigríður Bjarnadóttir 7,94
5 Auður frá Kjarri / Eggert Helgason 7,91
6 Bessý frá Heiði / Guðlaug Jóna Matthíasdóttir 7,80
7 Bjarkar frá Blesastöðum 1A / Stefnir Guðmundsson 7,66
8 Lenda frá Suður-Nýjabæ / Verena Christina Schwarz 7,43
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH