Hrossaræktarsamtök styrkja félagsmenn
Hrossaræktarsamtök V-Húnavatnssýslu hafa ákveðið að veita hrossaræktendum í félaginu styrk fyrir hross sem þeir koma með í kynbótadóm. Veittur verður 10.000 kr. styrkur fyrir fyrsta fullnaðardóm hjá hrossi sem er ræktað af félagsmenni og í eigu félagsmanns þegar hrossið er dæmt. Er þeim sem vilja þiggja styrkinn bent á að hafa samband við Guðnýju í netfangið [email protected] ásamt kennitölu og reikningsnúmeri, fyrir 15. nóvember n.k.
Þetta eru ekki fyrstu hrossaræktarsamtökin sem taka upp á þessu en Hrossaræktarfélag Hrunamanna styrkti félagsmenn sína í fyrra. Var almenn ánægju með verkefnið og ákveðið að halda því áfram.
Margareterhof er selt
Átta hlutu gullmerki LH
Suðurlandsdeildin áfram á EiðfaxaTV
Heim í hlað – Ný þáttaröð á EiðfaxaTV