Vilja öll hesthús í A stofn
Fyrir landsþingi hestamanna liggur tillaga frá LH um að þingið beini því til ráðherra sveitarstjórnarmála að fasteignagjöld á hesthúsum verði í sama gjaldflokki allsstaðar á landinu, það er að segja í A stofni. Líkt og íbúðarhúsnæði, frístundahúsnæði og útihús á lögbýlum. Sem bera 0,2-0,5% fasteignagjöld.
Nokkur sveitarfélög flokka hesthús í C flokk, sama flokk og iðnaðarhúsnæði. Sem bera víðast hvar 1,3-1,6% fasteignagjöld. Sem dæmi þá er reiðhöll í þéttbýli í C stofni en reiðhöll á lögbýli í A stofni. Þetta getur munað tugum og jafnvel hundruðum þúsunda. LH hefur átt í viðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga vegna málsins, sem er sammála tillögu LH. Ágreiningur er hins vegar milli ríkisins og sveitarfélaganna, þar sem sveitarfélögin telja sig verða að fá tekjustofn á móti ef þau setja öll hesthús í A stofn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári