Myndskeið af Sigri og Hinrik-
Þeir voru meðal glæsilegustu stjarna Heimsmeistaramótsins.
Með öryggið uppmálað sýndu Sigur frá Hólabaki og Hinrik Bragason sína sjarmerandi og fasmiklu hlið í forkeppnum tölts T1 og fjórgangs V1. Meðfylgjandi eru myndskeið af sýningum þeirra félaga en þeir tryggðu sér eftirminnilega öruggt sæti í A-úrslitum beggja greina.
Þar háðu þeir baráttu við önnur glæsihross, stóðu sig með afbrigðum vel og urðu í 4. Sæti í tölti og 5. sæti í fjórgangi.
Til hamingju Hinrik og Sigur!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH