Landsmóti hestamanna ekki frestað aftur
Stjórn LH heldur fast við ákvarðanir varðandi LM2010 frá í vor og sumar. Sem sagt að LM2010 sem frestað var verði haldið á Vindheimamelum í Skagafirði næsta sumar. Frá stjórninni liggur tillaga fyrir landsþingi hestamanna þess efnis. Ný dagsetning er 26. júní – 3. júlí 2011. Einnig er lagt til að aldursflokkaskipting verði sú sama á mótinu og í gildi var á þessu ári, það er að segja að unglingar og ungmenni sem eru í raun komin upp úr sínum flokki á næsta ári halda keppnisrétti sínum á Landsmótinu næsta sumar. Jafnframt liggur fyrir önnur tillaga frá stjórn LH um að ef sú staða kemur upp aftur að Landsmót verði fellt niður af óviðráðanlegum ástæðum sé það einfaldlega úr sögunni og næsta mót taki við að tveimur árum liðnum.
Tekið skal fram að búist er við mikilli umræðu um Landsmót á landsþingi hestamanna sem hefst klukkan tvö í dag á Akureyri. Fyrir þingingu liggja nokkrar tillögur um breytingar á skipulagi Landsmót, þannig að óvíst er hvað stefnu málið tekur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári