Hestadagar í Reykjavík í mars

  • 29. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Tímamótaviðburður í borgarmenningunni

Hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu eru þegar farin að undirbúa sig fyrir Hestadaga í Reykjavík, sem fyrirhugaðir eru um mánaðamótin mars og apríl í vetur. Landssamband hestamannafélaga stýrir verkefninu í samstarfi við Höfuðborgarstofu og hestamannafélögin. Forstöðumaður verkefnisins er Haraldur Örn Gunnarsson markaðsstjóri hjá LH.

Hugmyndasmiðurinn að Hestadögum í Reykjavík er Óskar Bergsson, fyrrverandi Borgarfulltrúi og hestamaður. Borgarstjórn samþykkti tillögu Óskars sem svar við skýrslu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins um markaðssetningu íslenska hestsins erlendis og er framlag borgarinnar til átaks í þeim efnum.

Hestadagar í Reykjavík verða íburðarmiklir og fjölbreyttir samkvæmt uppkasti að dagskrá, sem sjá má á vef hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ. Dagana fyrir hina eiginlegu hátíð verða hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu með opið hús og litla viðburði. Þann 1. apríl verður stórsýning í Reiðhöllinni í Víðidal. Húsdýragarðurinn í Laugardal verður lagður undir hestasýningar laugardaginn 2. apríl og hugmyndin er að setja upp nokkurs konar hestaþorp á svæðinu milli Skautahallarinnar og Húsdýragarðsins sama dag. Þar geta verslanir, handverksfólk og aðrir sem vilja auglýsa vöru eða þjónustu í hestamennsku leigt sér bása. Þá um kvöldið verður svo Ístölt hinn allra sterkustu í Skautahöllinni.

Hestadagar í Reykjavík eru tímamótaviðburður í borgarmenningunni og í hestamennsku á Íslandi. Ljóst er að Reykjavík mun iða af hestalífi og að ekki munu hafa verið fleiri hestar í borginni síðan fyrir bílaöld. Gert er ráð fyrir að þessi viðburður verði árlegur í framtíðinni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link