Úr hörpu hugans

  • 16. desember 2010
  • Fréttir
Úr hörpu hugans

Í tilefni af sextugsafmæli sínu á árinu hefur söngvarinn og hrossaræktandinn Baldvin Kristinn Baldvinsson í Torfunesi gefið út geisladiskinn Úr hörpu hugans…

Jón Stefánsson organisti Langholtskirkju spilar með á orgel og Kammerkór Langholtskirkju syngur með.
Baldvin er fæddur árið 1950  að Rangá í Kaldakinn.  Hann hefur sungið við ýmis tækifæri frá unglingsaldri, bæði einsöng og með kórum. Einnig hefur hann tekið þátt í söngleikjum og óperum. Árið 1994 gaf  Baldvin út geisladisk með einsöngslögum en áður hafði hann gefið út plötu með Baldri bróður sínum þar sem þeir sungu tvísöngslög. Á þessum diski eru ýmis verk sem Baldvin hefur verið að syngja undanfarin ár.
Diskurinn er fáanlegur í öllum betri verslunum og svo má kaupa diskinn ,,beint frá býli´´. Áhugasamir geta sent tölvupóst á netfangið [email protected] og/eða hringt í síma: 464-3622 // 863-9222 // 868-2651
 
www.torfunes.is
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link