„Sala á stöngum hefur aukist“

  • 15. desember 2010
  • Fréttir
"Sala á stöngum hefur aukist"

Eiðfaxi heimsótti verslunina Ástund í Austurveri og spjallaði við Guðmund Arnarsson um jólaverslunina.
„Þetta ár hefur verið „hnakkaár“ má segja. Mikil sala hefur verið í hnökkum en verð á þeim hefur verið mjög hagstætt. Fyrir jólin er mikið keypt af smávöru og hanskar eru sérstaklega vinsælir sem smávara. Annars er allur fatnaður að seljast vel á aðventunni, fólk er líka að taka inn og vill vera viðbúið öllum veðrum“ segir Guðmundur.
„Við eigum allt sem þarf, bæði fyrir hestinn og knapann og hér í Ástund er fagfólk allt árið, ekki bara fyrir jólin“ heldur hann áfram brosandi.
„Í framhaldi af því að Eiðfaxi birti mjög góða grein um notkun íslenskra stangaméla eftir Guðmar Þór Pétursson, kom viðbragð í sölu á stöngum hjá okkur. Við erum núna með sérstök tilboðsverð á þeim“ sagði Guðmundur og rauk í afgreiðslu.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link