Álfadísi og Ljónslöpp slær saman
Hrossaræktarbúið Ketilsstaðir/Selfoss/Syðri-Gegnishólar er hrossaræktarbú ársins 2010. Þar eru ræktendur Bergur Jónsson og Olil Amble. Í þeim nítján hrossa hópi sem þau sýndu sameiginlega á þessu ári eru hross frá Ketilsstöðum, og úr ræktun Olil Amble, sem flest eru undan Álfadísi frá Selfossi, eða skyld henni. Það má því segja að þar slái þeim saman, Ljónslöpp frá Ketilsstöðum (yngri og eldri) og Álfadísi. Ekki neinar smá kanónur þar á ferð. Fjallað er um ræktunarbú ársins í Hestum og hestamönnum sem koma út á morgun, fimmtudag.
Hægt er að kaupa áskrift í síma 511-6622 eða með því að smella HÉR.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson