Vetrarmótaröð Mána
HS Orka og Hestamannafélagið Máni hafa undirritað samning þess efnis að vetrarmótaröð Mána 2016 muni bera nafn HS Orku. Fyrsta mótið í vetrarmótaröð HS Orku og Mána fer fram laugardaginn 6. febrúar en þá verður keppt í tölti.
Alls verða þrjú mót í mótaröðinni og safna keppendur stigum í hverri keppni. Föstudaginn 19. febrúar verður keppt í smala og 5. mars verður þrígangur.
Ásgeir Margeirsson forstjóri HS Orku og Helga Hildur Snorradóttir fulltrúi mótanefndar Hestamannafélagsins Mána undirrituðu samstarfssamninginn í glæsilegri reiðhöll hestamannafélagsins. Á myndinni eru auk Ásgeirs og Helgu Hildar þær Ólöf Rún Guðmundsdóttir og 17 vetra merin Sónata sem sá til þess að allt færi vel fram.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH