Eyjólfur og Hlekkur unnu
Eyjólfur Þorsteinsson og Hlekkur frá Þingnesi unnu nú í kvöld fyrstu Meistaradeildarkeppnina, en keppt var í fjórgangi. Í öðru sæti urði Íslandsmeistararnir Guðmundur Björgvinsson og Hrímnir frá Ósi en þriðju urðu Sigurður Sigurðsson og Loki frá Selfossi.
Hlekkur hefur með þessum sigri skipað sér á fremsta bekk meðal fjórgangshesta, en hann, Hrímnir og Loki voru í sérflokki hvað gæði og form varðar nú í kvöld.
Eins og gefur að skilja bera hrossin þess merki að tímabilið sé rétt að byrja, en hestar eins og Korgur frá Ingólfshvoli er talsvert frá því formi sem hann var í Meistaradeildinni í fyrra. Artimisia og Korgur enduðu í 3-4 sæti í B-Úrslitum.
Dagskrá kvöldsins var talsvert löng en í upphafi kvöldsins var setningarathöfn þar sem Guðni Ágústsson hélt ræðu auk þess sem Brokkkórinn og Ingó Veðurguð tóku nokkur lög. Setja má spurningarmerki við hvort rétt var að hafa svo langa dagskrá á undan keppninni nú þegar einu liði hefur verið bætt við og einnig er hægt að spyrja hvort rétt sé að hafa B-úrslit í keppni sem þessari.
Úrslit í kvöld voru eftirfarandi:
1 Eyjólfur Þorsteinsson / Hlekkur frá Þingnesi 8,27
2 Guðmundur Björgvinsson / Hrímnir frá Ósi 8,00
3 Sigurður Sigurðarson / Loki frá Selfossi 7,87
4 Árni Björn Pálsson / Öfjörð frá Litlu-Reykjum 7,33
5 Hulda Gústafsdóttir / Ketill frá Kvistum 7,27
6 Jakob Svavar Sigurðsson / Asi frá Lundum II 7,23
Niðurstöður B-úrslit
1 Hulda Gústafsdóttir / Ketill frá Kvistum 7,40
2 Olil Amble / Háfeti frá Leirulæk 7,37
3-4 Sigurður Vignir Matthíasson / Svalur frá Litlu-Sandvík 7,33
3-4 Artemisia Bertus / Korgur frá Ingólfshvoli 7,33
5 Hinrik Bragason / Hængur frá Hæl 7,30
6 Viðar Ingólfsson / Kringla frá Jarðbrú 7,23
7 Gústaf Ásgeir Hinriksson / Naskur frá Búlandi 7,00
Niðurstöður úr forkeppni
1 Eyjólfur Þorsteinsson / Hlekkur frá Þingnesi 7,70
2 Guðmundur Björgvinsson / Hrímnir frá Ósi 7,67
3 Sigurður Sigurðarson / Loki frá Selfossi 7,60
4 Jakob Svavar Sigurðsson / Asi frá Lundum II 7,30
5 Árni Björn Pálsson / Öfjörð frá Litlu-Reykjum 7,27
6-7 Olil Amble / Háfeti frá Leirulæk 7,17
6-7 Gústaf Ásgeir Hinriksson / Naskur frá Búlandi 7,17
8 Hulda Gústafsdóttir / Ketill frá Kvistum 7,13
9 Artemisia Bertus / Korgur frá Ingólfshvoli 7,10
10-12 Sigurður Vignir Matthíasson / Svalur frá Litlu-Sandvík 7,07
10-12 Viðar Ingólfsson / Kringla frá Jarðbrú 7,07
10-12 Hinrik Bragason / Hængur frá Hæl 7,07
13 Anna S. Valdemarsdóttir / Vakar frá Ketilsstöðum 7,00
14-16 Sigurbjörn Bárðarson / Hróður frá Laugabóli 6,93
14-16 John Sigurjónsson / Konsert frá Korpu 6,93
14-16 Anna Björk Ólafsdóttir / Reyr frá Melabergi 6,93
17 Sigursteinn Sumarliðason / Dökkvi frá Ingólfshvoli 6,83
18 Ólafur Ásgeirsson / Hugleikur frá Galtanesi 6,70
19-20 Bergur Jónsson / Fálmar frá Ketilsstöðum 6,67
19-20 Reynir Örn Pálmason / Rauður frá Syðri-Löngumýri 6,67
21 Sylvía Sigurbjörnsdóttir / Þórir frá Hólum 6,57
22 Þórdís Erla Gunnarsdóttir / Glefsa frá Auðsholtshjáleigu 6,40
23 Kári Steinsson / Prestur frá Hæli 6,23
24 Ævar Örn Guðjónsson / Þyrla frá Strandarhjáleigu 6,17
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH