Netkosning á LH félaga ársins
LH félagi ársins eru hvatningarverðlaun fyrir sjálfboðaliða og félaga hestamannafélaga sem vinna fórnfúst og óeigingjarnt starf í þágu hestamennskunnar. Stjórn LH óskaði eftir tilnefningum frá aðildarfélögum LH að félaga ársins, ásamt rökstuðningi fyrir valinu og er það nú í höndum félagsmanna að kjósa hver verður valinn sem félagi ársins.
Félagi ársins er einstaklingur sem:
- Er virkur í félagsstarfinu og dregur aðra með sér
- Hefur rifið upp félagsstarfið í sínu félagi
- Er brautryðjandi í félagsstarfinu
- Hefur mikil áhrif á heildarhagsmuni síns félags og félagsmanna þess.
Nú á síðu LH er hægt að kjósa um LH félaga ársins
Eftirfarandi eru tilnefndir til LH-félaga ársins fyrir óeigingjarnt starf í þágu hestamanna:
Kristín Thorberg – Funa
Kristín Thorberg er fædd 13. nóvemver 1948. Býr í Litla-Dal Eyjafjarðarsveit, með kindur og stundar hrossarækt, ásamt þvi að eiga hesthús á Melgerðismelum þar sem hún er með tamingakonu á sínum snærum.
Kristín hefur verið félagsmaður Funa í tæp 50 ár. Starfað sem stjórnarmaður og í flestum nefndum félagsins í gegnum tíðina. Hefur unnið ómetanlegt sjálfboðaliðastarf meira en margur annar og alltaf boðin og búin að græja og gera fyrir Funa. Árið 2010 á 50 ára afmæli félagsins var Kristín gerð að heiðursfélaga Funa ásamt manni sínum Jónasi Vigfússyni heitnum. Á sjálfan brúðkaupsdag þeirra hjóna, fóru þau að safna áheitum fyrir Bæjakeppni Funa sem hefur verið fest á þeirra degi á sjálfri Jónsmessunni 24. júní ár hvert. Á síðustu Bæjakeppni var Kristín elsti knapinn. Kristín hefur einnig verið ötul í æskulýðsstarfi Funa, verið mikill stuðningur í nefndinni og hvatt nýja nefndarmenn áfram ásamt því að smita sinn kærleika og metnað fyrir félagsstarfinu til annara félagsmanna og ætíð haft hagsmuna Funa að leiðarljósi.
Funi á Kristínu óendanlega mikið að þakka.
Ragnheiður Þorvaldsdóttir – Herði
Sannur Harðarfélagi í áratugi. Hefur sinnt öllum hliðum hestamennsku, er keppnisknapi, menntaður reiðkennari og þjálfari, áhugamanneskja um TREK og hestaferðir. Fer árlega á fjall að smala á hestunum sínum og hefur sjálf ræktað hross árum saman.
Hún hefur verið mjög virk í mótanefnd Harðar í fjölda ára og hefur eftir verið tekið elju og vinnusemi á því sviði.
Hún mætir manna fyrst á mót til að sinna verkefnum sem þarf til að mót séu haldin, vinnur sem þulur eða ritari og stekkur líka til og kaupir mat fyrir starfsfólk móta. Hún fer svo ekki heim fyrr en búið er að ganga frá öllu, það eru leiðnlegu verkin sem fáir vilja sinna.
Íslandsmót yngri flokka í sumar hefði orðið mun snúnara í framkvæmd ef ekki hefði Ragnheiður þar gengið í öll verk myrkra á milli. Jafnt við undirbúning sem vinnu á mótinu sjálfu, grasslátt, innkaup og þularstörf.
Á sumum mótum er hún jafnframt keppandi og ekki síður móðir barna sinna sem eru að keppa. En gengur samt alltaf til allra verka sem sinna þarf.
Hún hefur lagt sig fram um að klæðast Harðarjakka í keppni og hvatt sitt fólk til að gera slíkt. Fer gjarnan í farabroddi í fánareið eða öðrum samsettum hópreiðum sem farnar eru á vegum félagsins.
Ef það er ekki starfandi árshátíðarnefnd til dæmis þá stekkur Ragnheiður til og safnar liði og setur saman ógleymanlega skemmtun. Hvetur alla til að taka þátt og dregur leggur sig fram um að skemmta öðrum. Hún fer í reiðtúra sem skipulagðir eru á vegum Harðar hvort sem það er kvennareiðnefnd eða ferðanefnd sem skipuleggur, lengri og skemmri túra.
Ragnheiður hefur kennt ýmis almenn námskeið hjá félaginu sínu og um allt land en ekki síður hefur hún sérhæft sig í „öðruvísi“ nálgun í hestamennskunni, að hafa gaman og vinna með hestinn sinn á annan hátt en hefðbundið þykir. Hún hefur sett saman námskeið sem var kallað sirkusnámskeið undir áhrifum frá Pat Parelli. Það námskeið hefur svo þróast í námskeið í að verða góður leiðtogi hestsins í gegnum þrautir sem parið leysir saman, hvort sem útkoman verður „sirkushestur“ eða ekki. Allt unnið af frjálsum vilja hestins, jafnt til skemmtunar og til að bæta samband manns og hest og ekki síður til að bæta líkamsbeitingu hestsins og umhverfisþjálfa.
Það hefur enginn breiðara bros eða léttari lund og hún er boðin og búin að aðstoða þá sem þurfa. Ragnheiður er óspör á að hrósa fólki og leggur sig fram við að gera það fallega og þó ekkert sérstakt standi til, það hittir fólk vel. Félagshjartað hennar er stórt og hún mætir á nær alla viðburði félagsins og ber merki þess víða af stolti og jákvæðni.
Ragnheiður er svo sannarlega vel að viðurkenningu komin og er útnefnd félagsmaður ársins 2024 hjá hestaíþróttafélaginu Herði.
Sigurlína Erla Magnúsdóttir – Skagfirðingi
Hestamannafélagið Skagfirðingur tilnefnir Sigurlínu Erlu Magnúsdóttur til LH félaga ársins.
Sigurlína hefur unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu félagsins í mörg ár. Hún kom inn í stjórn Skagfirðings árið 2021, Meistaradeildar KS árið 2020 og stjórn reiðhallarinnar á Sauðárkróki (Flugu) árið 2022 sem formaður og og er enn í dag.
Sigurlína er “JÁ” manneskjan okkar, hún er alltaf boðin og búin til að aðstoða hvar sem þess gerist þörf. Hún er einn af drifkröftum okkar í reiðhöllinni ásamt því að standa vaktirnar í sjoppunni við fjáröflunar starfið. Sigurlína hefur staðið vaktina við marga viðburði og mót á vegum Skagfirðings þar á meðal framkvæmdanefndum fyrir Íslandsmót og Landsmót.
Hún er jákvæð, drífandi og mjög svo óeigingjörn á sinn tíma fyrir félagið.