Ísmót á Hrísatjörn

  • 7. febrúar 2016
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Keppt verður í tölti opnum flokki og 100m skeiði.

Laugardaginn 13. febrúar blæs Hestamannafélagið Hringur til Ísmóts á Hrísatjörn. Keppt verður í tölti opnum flokki og 100m skeiði. Skráning skal fara fram með tölvupósti á netfangið [email protected]fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 11. febrúar. Skráningargjald er 2500 kr. á fyrstu skráningu og 2000 kr. á skráningar eftir það.  Ath. að tveir dómarar munu dæma saman í Töltinu og tímataka í skeiði verður á handklukkur.

Skráningargjald þarf að leggja inná reikning hestamannafélagsins kt. 540890-1029, reikn: 0177-26-175 tilvísun „ísmót“ kvittun sendist á [email protected] .

Skráning telst gild þegar greiðsla hefur borist.

Mótið hefst kl 11:00 og skulu knapar vera mættir 10:30

Upplýsingar um mótið veitir Þorsteinn Hólm í síma 867 5678

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link