Skráning hafin á Opið íþróttamót UMSS
Skráning er hafin á Opið hestaíþróttamót (UMSS) á Sauðárkróki sem fer fram dagana 5. – 6. maí.
Keppt verður í hefðbundnum hesta íþróttagreinum ásamt létt tölt T7 (hægt, snúa við, svo frjáls ferð) og létt fjórgang V5 (beðið um frjáls ferð á tölti, hitt er eins) ef næg þátttaka næst.
- Fjórgangur V1, tölt T1 og T2 og fimmgangur F1- fullorðnir – einn inná í einu.
- Fjórgangur V2, tölt T3, fimmgangur F2 – yngra flokkar – 2-3 inná í einu.
- 100m skeið
- 150m skeið
- 250 m skeið
Við skráningu þarf að gefa upp:
1. nafn og kennitölu knapa
2. nafn og fæðingarnúmer hests (IS)
3. keppnisgrein
4. uppá hvaða hönd keppandinn vill riða (ekki fullorðnir)
Senda skráningu á [email protected]. Skráningu lykur fimmtudaginn 3. maí kl 21.00.
Skráningargjald er 4.000 kr fyrir fyrstu skráningu en 1.000 kr á næstu skráningar hjá sama knapa. Leggja skal inn á reikning UMSS: 310 – 26 – 1997 Kt: 670269-0359 MUNA- skýring: nafn á hesti.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá hestaíþróttaráði Ungmannasambands Skagafjarðar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH