Pjetur nýr formaður HÍDÍ
Aðalfundur HÍDÍ var haldinn þann 23.janúar s.l. í Íþróttamiðstöðinni Laugardal. Alls mættu 31 félagsmenn, fundarstjóri var Sigurbjörn Bárðason.
- Skýrsla fráfarandi formanns, Gylfa Geirssonar, var kynnt og reikningar félagsins samþykktir án athugasemda.
- Laun dómara fyrir árið 2012 voru rædd og breytingartillaga samþykkt einróma.
Héraðsdómari kr. 2.500 pr/klst
Landsdómari kr. 3.000 pr/klst
Alþjóða dómari kr. 3.500 pr/klst
Útkall dómara kr. 15.000
- Ný stjórn var kosin og hana skipa:
Pjetur N. Pjetursson, formaður
Berglind Sveinsdóttir, meðstjórnandi
Ólöf Guðmundsdóttir meðstjórnandi
- Gylfi Geirsson gaf ekki kost á sér áfram sem formann HÍDÍ var honum þakkað sérstaklega fyrir þau 10 ára sem hann hefur gengt embættinu.
- Önnur mál:
Hulda G. Geirsdóttir kynnti fyrir félagsmönnum ráðstefnu fyrir alþjóðadómara sem haldin verður í Mosfellsbæ 13.-14.apríl. Einnig kynnti hún að nýr leiðari væri í burðarliðum en það er sportnefnd FEIF sem er með þau mál á sinni könnu.
Sigurður Ævarsson benti á að skýra þarf fyrir mótshöldurum að nota rétta flokka í SportFeng við skráningu móta og að úrslit séu rétt riðin – T1, T3 o.s.frv. Sigurður kom einnig með þá hugmynd að það þyrfti að koma á einhverskonar eftirlitskerfi með dómstörfum.
Komið var með hugmyndir að fá fleiri norðan-dómara að dæma fyrir sunnan og öfugt og féll það í góðan farveg.
Gylfi sagði okkur frá hugmyndum sem væru í gangi að koma á einhverskonar jöfnunarsjóði sem komi á móts við hestamannafélög varðandi niðurgreiðslu á akstri dómara þegar það á við.
Þökkum þeim félagsmönnum sem náðu að koma þrátt fyrir slæmt veður og færð.
Með kveðju,
Stjórn HÍDÍ
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári