Dagsetningu breytt svo Þórður megi sýna-
Eins og fram hefur komið er Þórður Þorgeirsson í 9 mánaða keppnis- og sýningarbanni til og með 3.maí næstkomandi. Einmitt þann dag, 3.maí hefði Þórður átt að sýna hross á FIZO kynbótasýningu á Lipperthof í Þýskalandi, hjá Uli og Irene Reber. Það er löng hefð fyrir því að Þórður komi og sýni hross á sýningunni.
En hvað segir Uli Reber um þetta? Henning Drath hjá isibless.de talaði við hann í gær:
„Við stöndum sem fyrr með Þórði í þessu og höfum ákveðið að halda ekki sýningu án hans þátttöku og færðum því sýninguna aftur um tíu daga, til 13.-16.maí. Í vikunni áður verður Þórður til taks á Lipperthof í Wurz og þjálfar sýningarhrossin og undirbýr þau fyrir sýninguna.“
Eftir það munum við hér heima á klakanum, væntanlega fá að sjá Þórð á kynbótasýningum vorsins og jafnvel taka þátt í gæðingaúrtökum líka..?
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson