Flott fjórgangskeppni 1. flokks
Hrímnir frá Ósi fór mikinn hjá Guðmundi Björgvinssyni hér í sólinni þegar þeir sigruðu fjórgangskeppni 1. flokks nokkuð örugglega.
Viðar Ingólfsson varð Reykjavíkurmeistari þegar hann varð í öðru sæti og Hulda Gústafsdóttir samanlagður fjórgangsmeistari.
Dómurum hugnaðist reiðlag Önnu S. Valdemarsdóttur og Huldu Gústafsdóttur en þær fengu sitthvoran plúsinn fyrir prúða reiðmennsku.
1 Guðmundur Björgvinsson / Hrímnir frá Ósi 7,73
2 Viðar Ingólfsson / Fríð frá Mið-Fossum 7
3 Hulda Gústafsdóttir / Ketill frá Kvistum 6,87
4-5 Fredrik Sandberg / Svali frá Þorlákshöfn 6,83
4-5 Anna S. Valdemarsdóttir / Náttar frá Vorsabæjarhjáleigu 6,83
6 Hinrik Bragason / Vaðall frá Njarðvík 6,8
7 Jón Ó Guðmundsson / Draumur frá Holtsmúla 1 6,63
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH