Annað vetrarmót Smára
Annað Vetrarmót Smára verður haldið laugardaginn 15. Mars á svæði féagsins í Torfdal á Flúðum. Mótið hefst klukkan 14:00 og tekið verður við skráningum á staðnum frá kl 13:00
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Pollaflokk (9ára og yngri)
Barnaflokk (10-13 ára)
Unglingaflokk (14-17 ára)
Ungmennaflokk 18-21 árs)
I og II flokk fullorðinna
Unghrossaflokk (hross fædd 2009 og 2010)
Þetta er annað mótið af þrem í vetur og mótið mun fara fram með svipuðum hætti og síðast, unghrossaflokkur mun þó fara fram á hringvellinum eins og aðrir flokkar.
Bæði eigandi hests og knapi þurfa að vera virkir félagsmenn í Smára svo þáttaka sé gild.
Skráningargjald er 1000kr fyrir hverja skráningu og greiðist á staðnum. Fríar skráningar í Barna og Pollaflokk.
Styttu haustið með EiðfaxaTV