Mikil dagskrá í Líflandi

  • 15. desember 2010
  • Fréttir
Mikil dagskrá í Líflandi

Það er líf og fjör í hestavöruverslunum þessa dagana og má segja að þær séu „stefnumótastaðir“ hestamanna svona á aðventunni…

Boðið er uppá kaffi og jafnvel piparkökur með því og svo hafa sum þessara fyrirtækja heilmikla dagskrá af kynningum og fræðsluerindum.
Lífland hefur ráðið til sín fagfólk, þekkt hestafólk til þess að vera viðskiptavinum til aðstoðar og ráðgjafar. Hér er dagskráin næstu daga fram að jólum:
Föstudagur 17. Desember
Benedikt Líndal tamningameistari mun kynna Bennis Harmony hnakka sína í Líflandi, Lynghálsi frá 16 – 19
Laugardagur 18. Desember
Ingimar Sveinsson mun árita bók sína Hrossafræði í Líflandi Lynghálsi kl. 14
Baldvin Ari Guðmundsson tamningamaður mun aðstoða viðskiptavini Líflands á Akureyri við val á reiðtygjum frá 12 – 15
Sunnudagur 19. Desember
Rúnar Þór Guðbrandsson, hönnuður Hrímnishnakkanna mun kynna vörur sínar í Líflandi, Lynghálsi frá  13 – 16
Mánudagur 20. Desember
Þórdís Erla Gunnarsdóttir tamningamaður og reiðkennari mun aðstoða viðskiptavini Líflands Lynghálsi við val á reiðtygjum frá 16 – 19
Miðvikudagur 22. Desember
Viðar Ingólfsson tamningamaður mun aðstoða viðskiptavini Líflands Lynghálsi við val á reiðtygjum frá 16 – 19
Rúnar Þór Guðbrandsson, hönnuður Hrímnishnakkanna mun kynna vörur sínar í Líflandi Lynghálsi frá 16 – 19
Fimmtudagur 23. Desember
Sigurbjörn Bárðarson tamningameistari og nýkrýndur knapi ársins mun aðstoða viðskiptavini Líflands Lynghálsi við val á reiðtygjum frá 16 – 19
Baldvin Ari Guðlaugsson tamningamaður mun aðstoða viðskiptavini Líflands á Akureyri við val á reiðtygjum frá 15 – 18
Missið ekki af tækifærinu til að leita í reynslubanka þessa fagfólks.
Gleðilega hátíð,
Starfsfólk Líflands Lynghálsi og Akureyri
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link