Kvennareið 2014
Hin árlega kvennareið Sörla og Spretts verður föstudaginn 9. maí. Sörlakonur eru gestgjafar í ár og það er sólgleraugna -og varalitaþema!
Lagt verður af stað frá Sörlastöðum kl 18:00 og riðið til móts við Sprettkonur. Við hittumst svo við Maríuhellinn, ríðum aftur að Sörlastöðum þar sem er tekið á móti okkur með dýrindis mat og skemmtun!
Verð í matinn er 2000kr, greitt á staðnum. Fljótandi veitingar verða til sölu en konum er frjálst að hafa með sér nesti.
Athugið að það þarf að skrá sig í matinn í síma 849-6643 eða á netfang [email protected]
Skráning þarf að berast í síðasta lagi þriðjudaginn 6. maí!
Skellum upp brillum með sól í hjarta og fjölkvennum í eina skemmtilegustu reið ársins!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH