Lið Laugahvamms og Pípara Norðurlands
Vesturlandsdeildin verður haldin í vetur í Reiðhöllinni í Faxaborg í Borgarnesi. Fyrsta keppniskvöldið verður þann 25.febrúar næstkomandi þegar keppt verður í fjórgangi.
Í tilkynningu frá Vesturlandsdeildinni er annað liðið í röðinni kynnt til leiks en þau eru alls átta talsins, í yfirlýsingunni segir:
Næsta lið Vesturlandsdeildarinnar er lið Laugarhvamms og Pípara Norðurlands.
Þetta lið saman stendur af 5 knöpum og eru það þau:
Liðsstjóri: Elvar Logi Friðriksson
Kristinn Örn Guðmundsson
Eysteinn Tjörvi Kristinsson
Hallfríður Sigrbjörg Ólafsdóttir
Sigríður Vaka Víkingsdóttir
Þetta er nýtt lið í deildinni í vetur en liðstjóran þekkjum við vel hann Elvar Loga þar sem að hann hefur verið að keppa með öðru liði deildarinnar en hefur nú búið til sitt eigið lið og kemur með það alla leið að Norðan. Þetta verður æsi spennandi!