Öll mót Sleipnis í beinni á EiðfaxaTV
Magnús Benediktsson, framkvæmdastjóri Eiðfaxa, og Berglind Sveinsdóttir, formaður Hestamannafélagsins Sleipnis, undirrituðu í dag samning þess efnis að öll mót, sem fram fara á félagssvæði Hestamannafélagsins Sleipnis á Brávöllum á Selfossi næstu tvö árin, verði í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.
Þar með tryggir Eiðfaxi sér sýningarréttinn að Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna sem fram fer á Selfossi dagana 26.-29.júní. Fyrsta mótið sem fram fer á Brávöllum í vor er Alþjóðlegt íþróttamót (WR) mót Sleipnis. Það fer fram dagana 14.-18. maí og hefur mótið verið eitt það sterkasta hér á landi undanfarin ár. Með þessum samningi tryggir EiðfaxiTV sér einnig sýningarréttinn að Íslandsmóti barna og unglinga árið 2026, sem fram fer á Selfossi.
Berglind Sveinsdóttir hafði þetta að segja við undirritun samningsins.
„Við erum mjög spennt og glöð með þetta samstarf við Eiðfaxa sem gildir til tveggja ára. Það er mikið framundan hjá Slepnis í sumar og mjög spennandi að fá það verkefni að halda Íslandsmót fullorðinna og ungmenna. Undirbúningur fyrir það mót er komið á fullt og við erum einnig strax farin að huga að því hvernig við viljum halda utan um Íslandsmót barna og unglinga, sem fer fram hjá okkur árið 2026. Við erum metnaðarfull höfum yfir að búa frábæru mótssvæði bæði fyrir knapa og áhorfendur, auk þess að búa yfir miklum mannauð og reynslu miklum hópi fólks í mótahaldi.“
HÉR ER HÆGT AÐ GERAST ÁSKRIFANDI AÐ EIÐFAXA TV
Eiðfaxi TV er aðgengilegt á vefnum, í snjallsímum, Apple TV, Android TV, Google TV og Amazon Fire TV.
Ef einhverjar spurningar vakna eða þú þarft aðstoð vegna kaupa á áskrift þá getur þú sent okkur tölvupóst á help@eidfaxitv.is.