Hrossin frá Skagaströnd í eldinum

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Sekúndur skildu milli lífs og dauða

Það voru nokkur eðalhross úr ræktun Sveins Inga Gímssonar frá Skagaströnd sem voru hætt komin í hesthúsbruna á Varmárbökkum í Mosfellsbæ í gærkvöldi. Mínútur og sekúndur skyldu milli lífs og dauða.

Eldur kviknaði um hálf ellefu í gærkvöldi í hesthúsi sem er í fimm húsa lengju. Hesthús Sveins Inga er, eða öllu heldur var, í endahúsi vestan megin við húsið þar sem eldsupptökin voru. Hávaðarok var af norðaustri og eldurinn læsti sig í húsin með ógnarhraða.

„Það bjargaði hrossunum mínum að kunningi okkar Gunnar Valsson var með þeim fyrstu sem varð eldsins var. Hann hljóp inn í hesthúsið ásamt tveimur lögreglumönnum og tókst að hleypa hrossunum út. Þar á meðal tveimur folöldum sem voru í stíu innarlega í húsinu. Ef það hefði ekki verið kunnugur maður sem kom að þá hefði hann ekki tekið eftir folöldunum og það þyrfti ekki að spyrja um þau meira,“ segir Sveinn Ingi.

Öll hrossin sem í húsinu voru, níu talsins, eru út af hinni miklu kynbótahryssu Sunnu frá Akranesi. Þar á meðal stóðhestarnir Kostur og Guðberg frá Skagaströnd, og hinn veturgamli Klaki, sem er undan Sunnu og Álfi frá Selfossi. Hlutafélag hefur verið stofnað um þann hest. Einnig voru þar nokkur trippi og folöldin tvö.

 „Þetta var spurning um mínútur eða sekúndur. Gunnar segir að milliveggurinn hafi verið farinn að glóa. Eldurinn var búinn að læsa sig í hann. Þetta er mikið sjokk. Ég var nýbúinn að taka húsið í gegn, skipta um gólf í stíunum og sótthreinsa allt og mála hátt og lágt. Nú veit maður ekki hvað tekur við. Ég fékk inni fyrir hrossin í svokölluðu Gýmishúsi hér í hverfinu. Það eru allir boðnir og búnir til að hjálpa,“ segir Sveinn Ingi Grímsson.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link